Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   sun 19. apríl 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Nefnir tvo leikmenn sem Man Utd gæti tekið frá Tottenham
Rio Ferdinand væri til í tvo leikmenn frá Tottenham
Rio Ferdinand væri til í tvo leikmenn frá Tottenham
Mynd: EPA
Micky van de Ven verður eftirsóttur biti ef Tottenham fellur
Micky van de Ven verður eftirsóttur biti ef Tottenham fellur
Mynd: EPA
Fyrrum United-maðurinn Rio Ferdinand hefur nefnt tvo leikmenn sem Manchester United gæti reynt að fá í sumarglugganum, en hann var að vísu ekki mjög sannfærandi þegar hann var spurður út í það í hlaðvarpsþætti hans Rio Ferdinand Presents.

Tottenham er að eiga slakt tímabil í úrvalsdeildinni og situr í augnablikinu í fallsæti.

Mörg félög munu horfa til Tottenham í leit að styrkingu ef liðið fellur niður um deild.

Það eru nokkrir áhugaverðir bitar þar en Ferdinand var spurður hvaða leikmenn hann myndi taka frá Lundúnafélaginu í hlaðvarpinu.

Í fyrstu var Ferdinand ekki alveg viss, en hann náði þó að nefna tvo leikmenn sem væru áhugaverðir kostir fyrir United.

„Það er enginn sem mér dettur í hug í augnablikinu sérstaklega miðað við hvernig þeir eru að spila núna. Kannski Micky van de Ven og Djed Spence. Já, ég myndi taka Spence,“ sagði Ferdinand.

„Við erum með góða sóknarmenn og á vængjunum og varnarlega erum við með marga möguleika, en Van de ven væri spennandi viðbót ef það er í boði. Hann er gæðamikill leikmaður sem getur komið Man Utd á næsta stig,“ sagði Ferdinand enn fremur.

Van de Ven er á óskalista hjá mörgum úrvalsdeildarfélögum, en félög gætu einnig skoðað leikmenn á borð við Lucas Bergvall, Archie Gray, Richarlison, Guglielmo Vicario og Mohammed Kudus.
Slapp
banner
banner