Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 23:43
Brynjar Ingi Erluson
Þurftu að biðjast afsökunar á orðbragði Haaland
Haaland gekk glottandi um Etihad
Haaland gekk glottandi um Etihad
Mynd: EPA
Sky Sports neyddist til að biðjast afsökunar á orðbragði norska framherjans Erling Braut Haaland er hann mætti í viðtal hjá miðlinum eftir 2-1 sigurinn á Arsenal í kvöld.

Haaland var á bleiku skýi þegar hann mætti í viðtalið, en stuttu áður hafði hann gengið um allan Etihad-völlinn eins og kóngur, sungið lag með Flo Rida í myndavélina og auðvitað skorað sigurmarkið í sjálfum leiknum.



Eftir leikinn mætti hann síðan í viðtal og æstist hann allur upp við að tala um frammistöðu Bernardo Silva, sem var einn af allra bestu mönnum Man City eins og svo oft áður.

„Þú ert eins fokking Fabio Cannavaro,“ sagði Haaland um varnarvinnu Silva í leiknum og neyddist Dave Jones, þáttastjórnandi á Sky að biðjast formlega afsökunar á orðbragði Haaland.

Vonandi að þessi setning hafi ekki farið fyrir brjósti á þeim sem eru áskrifendur af Sky, en það var ekkert að fara skemma gleði Haaland og hans manna sem eru aðeins þremur stigum frá toppnum og geta tekið toppsætið þegar það mætir Burnley á miðvikudag.


Slapp
banner