Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
banner
   sun 19. apríl 2026 18:48
Brynjar Ingi Erluson
Þetta eru leikirnir sem Arsenal og Man City eiga eftir
Mynd: EPA
Það færðist spenna í titilbaráttuna er Manchester City vann Arsenal, 2-1, á Etihad-leikvanginum í Manchester í dag. Aðeins fimm umferðir eru eftir af deildinni, en Man City á hins vegar leik til góða sem verður spilaður í vikunni.

Arsenal hefur verið 197 daga á toppnum á þessu tímabili og fengið fjölmörg tækifæri til að stinga af þegar Man City hefur misstigið sig en ekki nýtt tækifærin.

Fyrir leikinn í dag var sex stiga munur á liðunum og gat Arsenal sett aðra hönd á titilinn, en í staðinn er City komið þremur stigum á eftir Lundúnaliðinu og getur tekið toppsætið á miðvikudag þegar það mætir fallbaráttuliði Burnley.

Hér fyrir neðan má sjá leikina sem Arsenal og Man City eiga eftir í deildinni.

Leikir Arsenal:
Newcastle (Heima) - 25. apríl
Fulham (Heima) - 2. maí
West Ham (Úti) - 10. maí
Burnley (Heima) - 17. maí
Crystal Palace (Úti) - 24. maí

Leikir Man City:
Burnley (Úti) - 22. apríl
Everton (Úti) - 4. maí
Brentford (Heima) - 9. maí
Bournemouth (Úti) - 17. maí
Crystal Palace (Heima) - Dagsetning ekki ákveðin (22. maí líklegt)
Aston Villa (Heima) - 24. maí
Slapp
banner