Roberto De Zerbi stýrir Tottenham í sínum fyrsta heimaleik þegar liðið fær hans fyrrum lærisveina í Brighton í heimsókn í dag.
Tottenham tapaði gegn Sunderland í síðustu umferð en það var sjöunda tap liðsins í röð. Tottenham er tveimur stigum frá öruggu sæti.
James Maddison er á bekknum, hann er að jafna sig af slæmum meiðslum en hann hefur verið fjarverandi allt tímabilið. De Zerbi gerir fjórar breytingar á liðinu. Kevin Danso kemur inn fyrir Cristian Romero sem er frá út tímabilið. Rodrigo Bentancur kemur beint inn í byrjunarliðið eftir meiðsli.
Fabian Hurzeler stillir upp óbreyttu liði frá 2-0 sigri á Burnley.

Tottenham: Kinsky; Porro, Danso, Van de Ven, Udogie; Bissouma, Gallagher, Bentancur; Kolo Muani, Solanke, Simons.
Varamenn: Austin, Dragusin, Palhinha, Richarlison, Maddison, Tel, Gray, Bergvall, Spence.
Brighton: Verbruggen, Wieffer, Van Hecke, Boscagli, Kadioglu, Ayari, Gross, Gomez, Hinshelwood, Minteh, Welbeck.
Varamenn: Steele, Julio, De Cuyper, Veltman, O'Riley, Baleba, Rutter, Kostoulas, Mitoma.