Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 21:57
Brynjar Ingi Erluson
Orri Steinn bikarmeistari með Sociedad og Evrópusætið tryggt
Orri Steinn og Sociedad eru bikarmeistarar
Orri Steinn og Sociedad eru bikarmeistarar
Mynd: EPA
Sociedad fagnar í kvöld
Sociedad fagnar í kvöld
Mynd: EPA
Atletico Madrid 2 - 2 Real Sociedad (3-4 eftir vítakeppni)
0-1 Ander Barrenetxea ('1 )
1-1 Ademola Lookman ('18 )
1-2 Mikel Oyarzabal ('45 , víti)
2-2 Julian Alvarez ('83 )

Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad eru spænskir konungsbikarmeistarar árið 2026 eftir að hafa unnið Atlético Madríd eftir vítakeppni í Seville-borg í kvöld.

Sociedad fékk bestu byrjun sem hægt er að fá. Ander Barrenetxea skoraði með skalla eftir aðeins 14 sekúndur sem kom honum í sögubækurnar, en þetta er fljótasta mark sem hefur verið skorað í úrslitum keppninnar.

Nígeríumaðurinn Ademola Lookman jafnaði á 18. mínútu leiksins og varð hann annar Nígeríumaðurinn til að skora í úrslitaleiknum á eftir Finidi George sem gerði það með Real Betis gegn Barcelona árið 1997.

Markið gerði hann með föstu skoti úr teignum sem hafnaði neðst í hægra horninu.

Undir lok hálfleiksins fengu Sociedad-menn vítaspyrnu er Juan Musso, markvörður Atlético, kýldi Goncalo Guedes í andlitið er sá portúgalski var að reyna við fyrirgjöf. Óheppilegt hjá Musso en vítaspyrna rétt ákvörðun.

Mikel Oyarzabal skoraði af punktinum og sá til þess að Sociedad færi með forystu inn í hálfleikinn.

Orri Steinn Óskarsson kom inn af bekknum á 78. mínútu leiksins hjá Sociedad og aðeins fimm mínútum síðar jafnaði Julian Alvarez metin með frábæru skoti við vítateigslínuna eftir að hafa tekið skemmtilega gabbhreyfingu á varnarmann Sociedad.

Atlético var líklegt til að ná í sigurmark undir lokin í gegnum Alexander Sorloth og Johnny Cardoso en báðar tilraunir framhjá markinu og þurfti því að grípa til framlengingar.

Alvarez fékk frábært færi fyrir Atlético í fyrri hluta framlengingarinnar en setti boltann í stöng. Sociedad náði að halda út framlenginguna og komast í vítaspyrnukeppni og þar höfðu þeir betur.

Unai Marrero varði fyrstu vítaspyrnuna frá Sorloth á meðan Carlos Soler skoraði úr fyrstu spyrnu Sociedad. Marrero sá síðan við Alvarez og kom Sociedad í frábæra stöðu.

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn var næstur á punktinn hjá Sociedad en hann lét Musso verja frá sér áður en Nicolas Gonzalez skoraði úr þriðju spyrnu Atlético. Luka Sucic svaraði með því að skora úr þriðju spyrnu Sociedad.

Thiago Almada skoraði úr fjórðu vítaspyrnu Atlético en Aihen Munoz svaraði og setti Atlético undir þvílíka pressu í fimmta vítinu, en Alex Baena skoraði. Það var síðan Pablo Marin sem tryggði Sociedad bikarinn með marki úr fimmtu spyrnunni.

Fyrsti titill Orra Steins með Sociedad sem er líka komið áfram í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð. Magnað afrek hjá Sociedad og Orra.


Slapp
banner