Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   sun 19. apríl 2026 21:44
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Milan ósannfærandi en vann samt - Juventus á skriði
Adrien Rabiot gerði sigurmark Milan
Adrien Rabiot gerði sigurmark Milan
Mynd: EPA
Khephren Thuram skoraði seinna mark Juve
Khephren Thuram skoraði seinna mark Juve
Mynd: EPA
Juventus vann þriðja sigurinn í röð í Seríu A á Ítalíu í kvöld og færist nær því að tryggja Meistaradeildarsæti.

Kanadíski sóknarmaðurinn Jonathan David og franski miðjumaðurinn Khephren Thuram sáu um að halda Juventus áfram á sigurbraut í 2-0 sigri á Bologna. David skoraði á annarri mínútu leiksins en Thuram gerði mark sitt snemma í síðari hálfleiknum.

Juventus er í 4. sæti deildarinnar með 63 stig en Bologna í 8. sæti með 48 stig.

MIkael Egill Ellertsson var í leikbanni þegar Genoa vann botnlið Pisa, 2-1. Genoa er í 13. sæti með 39 stig og svo gott sem búið að tryggja áframhaldandi veru í deildinni.

AC Milan vann ósannfærandi 1-0 sigur á Hellas Verona. Adrien Rabiot hótaði marki snemma leiks og tókst síðan ætlunarverk sitt á 41. mínútu með góðu skoti eftir sendingu frá Rafael Leao.

Verona fékk fjölmörg tækifæri til að jafna en tókst ekki. Milan kom boltanum í netið í síðari hálfleiknum er Matteo Gabbia stangaði boltanum í netið en markið var tekið af vegna rangstöðu.

Milan hafði tapað tveimur leikjum í röð og var því kærkomið fyrir liðið að komast aftur á sigurbraut fyrir lokasprettinn í baráttu um Meistaradeildarsæti. Milan er í öðru sæti með 66 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Pisa 1 - 2 Genoa
1-0 Simone Canestrelli ('19 )
1-1 Jeff Ekhator ('41 )
1-2 Lorenzo Colombo ('55 , víti)

Verona 0 - 1 Milan
0-1 Adrien Rabiot ('41 )

Juventus 2 - 0 Bologna
1-0 Jonathan David ('2 )
2-0 Kephren Thuram ('57 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 37 27 5 5 86 32 +54 86
2 Napoli 37 22 7 8 57 36 +21 73
3 Roma 37 22 4 11 57 31 +26 70
4 Milan 37 20 10 7 52 33 +19 70
5 Como 37 19 11 7 61 28 +33 68
6 Juventus 37 19 11 7 59 32 +27 68
7 Atalanta 37 15 13 9 50 35 +15 58
8 Bologna 37 16 7 14 46 43 +3 55
9 Lazio 37 13 12 12 39 39 0 51
10 Udinese 37 14 8 15 45 47 -2 50
11 Sassuolo 37 14 7 16 46 49 -3 49
12 Torino 37 12 8 17 42 61 -19 44
13 Parma 37 10 12 15 27 46 -19 42
14 Genoa 37 10 11 16 41 50 -9 41
15 Fiorentina 37 9 14 14 40 49 -9 41
16 Cagliari 37 10 10 17 38 52 -14 40
17 Lecce 37 9 8 20 27 50 -23 35
18 Cremonese 37 8 10 19 31 53 -22 34
19 Verona 37 3 12 22 25 59 -34 21
20 Pisa 37 2 12 23 25 69 -44 18
Slapp
banner
banner