Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool er að íhuga þann möguleika að selja argentínska miðjumanninn Alexis Mac Allister í sumar.
Mac Allister kom til Liverpool frá Brighton árið 2023 og var alger lykilmaður er liðið varð Englandsmeistari á síðasta ári. Hann var tilnefndur til Ballon d'Or verðlaunanna og sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni, en ekki náð sömu hæðum á þessari leiktíð.
Liverpool hefur rætt möguleikann á að selja Mac Allister, sem er þó bara einn af mörgum sem hafa verið að spila undir getu.
Argentínumaðurinn á tvö ár eftir af samningnum, en Mac Allister hefur verið orðaður við spænska stórveldið Real Madrid síðustu mánuði.
talkSPORT segir að Liverpool ætli að styrkja miðsvæðið í glugganum og hefur Adam Wharton, leikmaður Crystal Palace, komið reglulega upp í umræðunni, en Liverpool mun fá samkeppni frá Manchester United um enska landsliðsmanninn.
Palace hefur misst marga stóra pósta síðustu ár í þeim Michael Olise, Marc Guehi og Eberechi Eze, og mun félagið ekki selja Wharton nema rausnarlegt tilboð berist en talið er að verðmiðinn sé í kringum 100 milljónir punda.


