Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   lau 18. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Chelsea mætir Man Utd á Stamford Bridge
Man Utd fer á Stamford Bridge
Man Utd fer á Stamford Bridge
Mynd: EPA
Chelsea og Manchester United mætast í stórleik dagsins í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en spilað er á Stamford Bridge, heimavelli Chelsea.

Dagskráin hefst klukkan 11:30 með Lundúnaslag Brentford og Fulham. Bæði lið eru í kringum Evrópusvæðið en Brentford er í 7. sæti og á möguleika að komast upp fyrir Chelsea á meðan Fulham er í 12. sæti með 44 stig, aðeins þremur stigum frá Brentford.

Fallbaráttulið Leeds mætir botnliði Wolves klukkan 14:00. Leeds getur farið langleiðina með að senda Wolves niður.

Á sama tíma hefst leikur Newcastle og Bournemouth. Newcastle þarf sigur til að eiga einhvern möguleika á að lauma sér inn í Evrópukeppni á næsta tímabili en liðið er í 14. sæti á meðan Bournemouth er í 11. sæti með 45 stig og ekki tapað leik síðan í byrjun janúar.

Tottenham, sem er í fallsæti með 30 stig, mætir Brighton í Lundúnum.

Þetta er annað árið í röð þar sem Tottenham er að berjast um að halda sæti sínu í deildinni og eiginlega hálf ótrúlegt að lið með þennan hóp sé í þessari stöðu. Brighton er á meðan að berjast um Evrópusæti en liðið er í 9. sæti með 46 stig, tveimur stigum frá sæti í Evrópudeildina.

Klukkan 19:00 er síðan alvöru slagur um Meistaradeildarsæti er Chelsea tekur á móti Manchester United. Chelsea er að upplifa slæman kafla undir stjórn Liam Rosenior, en liðið er í 6. sæti með 48 stig, fjórum stigum frá Liverpool sem er í síðasta Meistaradeildarsætinu. Man Utd er í 3. sæti með 55 stig og ekki enn búið að tryggja sig í deild þeirra bestu á næstu leiktíð, en tap í dag gæti sett allt í uppnám.

Leikir dagsins:
11:30 Brentford - Fulham
14:00 Leeds - Wolves
14:00 Newcastle - Bournemouth
16:30 Tottenham - Brighton
19:00 Chelsea - Man Utd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner