,,Mér fannst við ekki vera allir að róa í sömu átt," sagði Kári Ársælsson leikmaður Breiðabliks í samtali við Fótbolta.net eftir 1-0 tap gegn Fram í dag.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 0 Breiðablik
Blikar sáu aldrei til sólar í leiknum og ógnuðu mark Fram lítið.
,,Það vantaði lausnir fram á við og mér fannst ekki við nógu beittir og vorum á hálfu tempói í fyrri hálfleik."
,,Það á ekki að vera erfitt að mótivera sig gegn Fram því þeir virðast hata okkur. Við þurfum nokkra punkta til að vera alveg öruggir ef það er ekki nóg til mótivera sig þá veit ég ekki hvað þarf."
Nánar er rætt við Kára í sjónvarpinu hér að ofan.






















