Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
   fim 09. apríl 2026 11:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
'Við þurfum að nota þetta sem vakningu, alveg klárt'
'Við þurfum að nota þetta sem vakningu, alveg klárt'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það hefði eiginlega engu máli skipt hvernig við hefðum æft því stór partur af liðinu var ekki að æfa. Ég tók þátt í þessu undirbúningstímabili og mér fannst það mjög gott'
'Það hefði eiginlega engu máli skipt hvernig við hefðum æft því stór partur af liðinu var ekki að æfa. Ég tók þátt í þessu undirbúningstímabili og mér fannst það mjög gott'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Hann heldur öllum á tánum, hefur komið virkilega sterkur inn í þetta'
'Hann heldur öllum á tánum, hefur komið virkilega sterkur inn í þetta'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, var sagður tæpur vegna meiðsla eftir bikarleikinn gegn KR á mánudag en hann sagði við Fótbolta.net að hann væri klár í að spila á sunnudag þegar Þór kemur í heimsókn í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Hann veitti viðtal eftir kynningarfund Bestu deildarinnar.

„Ég er bara góður, það kom eitthvað smá 'scare' í þessum leik en við frekari skoðun er allt í góðu," segir fyrirliðinn.

„Við fengum smá skell í fyrsta keppnisleiknum og við þurfum að nota það sem gott spark í rassinn. Við þurfum að vera klárir á sunnudaginn. Við þurfum að nota þetta sem vakningu, alveg klárt. Það var fullt af jákvæðum punktum gegn KR sem við getum tekið úr leiknum og líka fullt af öðrum punktum sem við getum lært af. Við þurfum að sjá til þessa að þetta sé spark í rassinn."

Hólmar var spurður út í undirbúningstímabilið hjá Val.

„Staðan var þannig að það voru margir með meiðsli sem fylgdu þeim frá síðasta tímabili, margir sem fóru í aðgerðir og svo komu einhver flækjustig út frá því. Það hefði eiginlega engu máli skipt hvernig við hefðum æft því stór partur af liðinu var ekki að æfa. Ég tók þátt í þessu undirbúningstímabili og mér fannst það mjög gott. Ég er sjálfur í góðu standi."

„Þetta var meira viðhald í desember-febrúar, svo var aðeins keyrt upp í mars. Það var gengið út frá því að það haldi mönnum ferskari og að menn séu ekki reyna toppa (yfir of langan tíma)."


Hermann Hreiðarsson tók við Val eftir síðasta tímabil.

„Mér finnst hann hafa komið mjög vel inn í þetta, hann er mikill karakter, gefur mikið af sér og heldur uppi mikilli stemningu og stuði. Hann heldur öllum á tánum, hefur komið virkilega sterkur inn í þetta."

Einhver skilaboð til stuðningsmanna Vals?

„Við þurfum á ykkur að halda, maður spilar alltaf betur þegar maður sér að þetta skiptir fólkið máli og maður er hvattur áfram. Þannig mætið á völlinn," segir Hólmar sem er á leið í sitt fimmta tímabil á Hlíðarenda.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl>
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner
banner
banner