Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
Álitið - Hvað mun koma mest á óvart?
Ægir Jarl ræðir heimkomuna - „Kitlar rosalega að ná að spila“
   lau 17. september 2011 18:19
Alexander Freyr Tamimi
Hólmfríður: Frábært hvað það mættu margir á völlinn
Kvenaboltinn
Hólmfríður Magnúsdóttir landsliðskona skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Íslands gegn Noregi í undankeppni EM kvenna í dag. Hún var að vonum hæstánægð með stigin þrjú í þessum mikilvæga leik á Laugardalsvellinum.

Lestu um leikinn: Ísland 3 -  1 Noregur

„Auðvitað erum við sáttar með að leggja Norsarana af velli í dag. Það var markmið okkar að ná í þrjú stig og við gerðum það á glæsilegan hátt,“ sagði Hólmfríður við Fótbolta.net.

„Við vorum eiginlega bara mjög góðar í fyrri hálfleik og náðum að skapa okkur mikið af færum. Þetta datt kannski aðeins niður hjá okkur í seinni hálfleik en við náðum að klára þetta mjög vel í dag. Baráttan var alltaf til staðar og við sýndum það að við ætluðum að landa þremur stigum í dag. Ég er bara ánægð með stelpurnar, hvað við lögðum mikið á okkur.“

Hólmfríður var ánægð með mætinguna á völlinn og vonast til þess að enn fleiri láti sjá sig í næsta leik gegn Belgíu á miðvikudaginn.

„Það er líka frábært hvað það mættu margir á völlinn í dag, ég vona bara að fleiri mæti á miðvikudaginn til að styðja okkur.“
Slapp
banner
banner
banner