PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
banner
   mán 30. júlí 2012 14:15
Elvar Geir Magnússon
Svona mun raðast í nýju 3. deildina
Hreinir úrslitaleikir um sæti í nýju deildinni
Mynd: Steingrímur Árni Róbertsson
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Eins og flestir vita þá verður deildum á Íslandsmóti karla fjölgað á næsta ári. Ný D-deild kemur inn sem skipuð verður tíu liðum. Neðsta deild (E-deild) mun því bera nafnið 4. deild og verður með svipuðu fyrirkomulagi og núverandi 3. deild.

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, fer yfir það í pistli á heimasíðu KSÍ hvernig „fæðing" þessarar nýju deildar fer fram. Hér að neðan má sjá þann hluta pistilsins.



Tvö efstu lið 3.deildar 2012 færast í 2.deild en 2 neðstu lið 2.deildar 2012 færast niður og leika í hinni nýju 3.deild 2013.

Öll lið sem vinna sér þátttökurétt í úrslitakeppni 3.deildar karla árið 2012 að undanskildum þeim liðum sem leika til úrslita (og hafa því unnið sér sæti í 2.deild 2013) , vinna sér sæti í 3.deild karla árið 2013.

Liðin sem lenda í þriðja sæti í riðlakeppni 3.deildar 2012 leika úrslitaleik um sæti í 3.deild 2013. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að leiknir verða hreinir úrslitaleikir, á hlutlausum velli milli liðsins í 3. sæti A riðils og liðsins í 3.sæti C riðils annars vegar og liðsins í 3.sæti B riðils og 3.sæti D riðils hinsvegar. sigurvegarar leikjanna vinna sér sæti í hinni nýju 3.deild árið 2013 en deildin verður skipuð 10 liðum.

Mikilvægt er að félög kynni sér það fyrirkomulag sem verður á deildunum árið 2013 en það er að finna í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. Fjölgun deilda í Íslandsmóti mun hafa umtalsverðar breytingar í för með sér og forvitnilegt verður að fylgjast með þeirri þróun sem breytingin mun leiða af sér.

Sjá einnig:
Hér má sjá núverandi stöðu í riðlum 3. deildarinnar
Slapp
banner
banner
banner