Vill fjölga liðum í 3. deild karla
Reynir Sandgerði leggur fram tillögu á ársþingi KSÍ þann 10. febrúar að liðum í 3. deild karla verði fjölgað úr tíu upp í tólf.
Tólf lið leika í þremur efstu deildum karla í dag en í 3. deild leika tíu lið. Í 4. deild er síðan leikið í fjórum riðlum og í úrslitakeppni í kjölfarið.
Tólf lið leika í þremur efstu deildum karla í dag en í 3. deild leika tíu lið. Í 4. deild er síðan leikið í fjórum riðlum og í úrslitakeppni í kjölfarið.
Árið 2013 var í fyrsta skipti spilað í tíu liða 3. deild og um leið varð neðsta deild að 4. deild. Áður hafði 3. deildin verið neðsta deild og þar var leikið í riðlakeppni.
Reynismenn féllu úr 3. deildinni í fyrra og leika því í riðlakeppni 4. deildar í sumar.
Kosið verður um tillögu Sandgerðinga á ársþingi KSÍ um aðra helgi og þá kemur í ljós hvort að liðum verði fjölgað í 3. deild. Sú breyting tæki þá væntanlega gildi sumarið 2019.
Greinargerð Reynis
Sú breyting að fara úr 10 þátttökuliðum í 12 á sínum tíma í þremur efstu deildum Íslandsmóts karla hefur heppnast vel að flestra mati. Reynir Sandgerði lék í 3. deild karla keppnistímabilin 2015, 2016 og 2017 en þar áður lék liðið í 12 liða deildum samfleytt frá árinu 2007. Það er reynsla Reynismanna að 12 liða deild sé mun heppilegri kostur en 10 liða deild. 22 leikir í stað 18 gerir tímabilið þéttara, lítið er um löng hlé á milli leikja. Árið 2017 liðu í þrígang 10 dagar millileikja liðsins í 3. deildinni og einu sinni 13 dagar. Tekjumöguleikar eru meiri þar sem heimaleikir eru 11 í stað 9. Keppnistímabilið er 2 vikum lengra í 12 liða deild.




