Lið ársins í 2. deild opinberað í dag
Klukkan fimm í dag mun Fótbolti.net opinbera lið ársins í 2.deild karla fyrir sumarið 2007 og verður verðlaunafhending í höfuðstöðvum KSÍ. Þetta er fimmta árið í röð sem við útnefnum lið ársins fyrir 2.deild karla og um leið verður leikmaður ársins, þjálfari ársins og efnilegasti leikmaðurinn útnefndur.
Lið ársins er valið af þjálfurum og fyrirliðum liðanna í 2.deild en þeir máttu að sjálfsögðu ekki velja menn úr sínu liði.
Það var fyrst 2003 sem við tókum upp á því að standa fyrir vali á liði ársins. Þá var þetta mun minna í sniðum og margir leikmenn sem fengu jafnmörg atkvæði og því fleiri en ellefu í liðinu. 2005 fór fram opinber verðlaunaafhending í fyrsta sinn og er þetta því þriðja árið í röð sem verðlaunaafhending fer fram.
Landsbankinn og VISA eru bakhjarlar lokahófs Fótbolta.net í 1. og 2. deild þetta árið en bæði fyrirtækin hafa staðið myndarlega að knattspyrnunni í sumar hér á landi.
Hér má sjá niðurstöður úr valinu síðustu fjögur ár:
2.DEILD
Þjálfari ársins:
2006: Þorvaldur Örlygsson - Fjarðabyggð
2005: Garðar Ásgeirsson - Leiknir
2004: Marko Tanasic - KS
2003: Ásmundur Arnarsson - Völsungur
Leikmaður ársins:
2006: Gestur Gylfason - Njarðvík
2005: Guðjón Baldvinsson - Stjarnan
2004: Ragnar Hauksson - KS
2003: Hlynur Stefánsson – KFS
Efnilegasti leikmaðurinn:
2006: Atli Heimisson - Afturelding
2005: Guðjón Baldvinsson - Stjarnan
Lið ársins:
---------------------------------------------------
2006:
Albert Sævarsson - Njarðvík
Kristinn Björnsson - Njarðvík
Haukur Ingvar Sigurbergsson - Fjarðabyggð
Andri Hjörvar Albertsson - Fjarðabyggð
Gestur Gylfason - Njarðvík
Guðfinnur Þórir Ómarsson - ÍR
Guðni Erlendsson - Njarðvík
Ólafur Ívar Jónsson - Reynir Sandgerði
Sverrir Þór Sverisson - Njarðvík
Jeppe Opstrup - Huginn
Adolf Sveinsson - Reynir Sandgerði
---------------------------------------------------
2005:
Gísli Eyland Sveinsson - Tindastóll
Bjarki Már Árnason - Tindastóll
Ómar Valdimarsson - Selfoss
Snorri Már Jónsson - Njarðvík
Steinarr Guðmundsson - Leiknir
Goran Lukic – Stjarnan
Haukur Gunnarsson – Leiknir
Sverrir Þór Sverrisson – Njarðvík
Vigfús Arnar Jósepsson - Leiknir
Guðjón Baldvinsson - Stjarnan
Dragoslav Stojanovic - Stjarnan
---------------------------------------------------
2004:
Vilberg Ingi Kristjánsson - Víkingur Ó
Branislav Zrnic - KS
Ómar Valdimarsson - Selfoss
Haukur Gunnarsson - Leiknir
Aleksandar Linta - Víkingur Ó
Predrag Milosavljevic - Víkingur Ó
Bjarki Már Flosason - KS
Yngvi Borgþórsson - KFS
Arilíus Marteinsson - Selfoss
Ragnar Hauksson - KS
Þórður Birgisson - KS
---------------------------------------------------
2003:
Elías Örn Einarsson - Selfoss
Ríkharð Bjarni Snorrason - Fjölnir
Ómar Valdimarsson - Selfoss
Hlynur Stefánsson - KFS
Garðar Már Newman - Víðir
Guðjón Þorvarðarson - Selfoss
Steinn Símonarson - Fjölnir
Sindri Bjarnason - Fjölnir
Ívar Björnsson - Fjölnir
Baldur Sigurðsson - Völsungur
Boban Jovic - Völsungur
Arngrímur Arnarsson - Völsungur
Sævar Gunnarsson - Sindri
Andri Valur Ívarsson - Völsungur
---------------------------------------------------
Sjá einnig:
Lið ársins í 2.deild 2006


