Fyrsta verk Inzaghi að sannfæra Theo Hernández
Ítalska stórveldið Inter er líklega að missa þjálfarann sinn til Al-Hilal í Sádi-Arabíu.
Stjórnendur Inter vilja ólmir halda Simone Inzaghi innan sinna raða en Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem greina frá því að Inzaghi sé að öllum líkindum að skipta yfir til Al-Hilal.
Romano segir að Inter sé strax byrjað að skoða í kringum sig og er Cesc Fábregas, þjálfari Como, efstur á óskalistanum. Inter er búið að setja sig í samband við Como til að spyrjast fyrir um hvað það gæti kostað að leysa Fábregas undan samningi.
Roberto De Zerbi þjálfari Marseille hefur einnig verið nefndur til sögunnar sem mögulegur arftaki.
Romano greinir einnig frá því að eitt að fyrstu verkum Inzaghi sem nýr þjálfari Al-Hilal verði að hringja í Theo Hernández, vinstri bakvörð AC Milan, og sannfæra hann um að skipta yfir.
Milan er reiðubúið til að samþykkja 35 milljón evru tilboð fyrir Hernández sem er 27 ára gamall og aðeins með eitt ár eftir af samningi við ítalska félagið.
Athugasemdir