Hvert fer Sancho? - Díaz orðaður frá Liverpool - City og Barca hafa áhuga á ungstirni Arenal - Elliott til Ítalíu og Sesko til Liverpool?
   mið 04. júní 2025 08:30
Elvar Geir Magnússon
Son og Sancho til Sádi-Arabíu?
Powerade
Son Heung-min.
Son Heung-min.
Mynd: EPA
Aaron Ramsdale.
Aaron Ramsdale.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Góðan og gleðilegan miðvikudag. Það er skollið á landsleikjahlé og hér er allt það helsta í slúðrinu. Sádarnir halda áfram að sækjast í leikmenn í ensku úrvalsdeildinni. BBC tók saman.

Framherjinn Son Heung-min (32) hjá Tottenham er skotmark Sádi-arabískra félaga og enska félagið gæti ákveðið að selja hann til að fjármagna leikmannakaup. (Telegraph)

Jadon Sancho (25), vængmaður Manchester United, gæti einnig verið á leið til Sádi-Arabíu þar sem Al-Hilal, Al-Ittihad og Al-Nassr hafa öll áhuga á enska landsliðsmanninum. (Mirror)

Martin Zubimendi (26), miðjumaður Real Sociedad, hefur dregið í efa að hann fari til Arsenal. Spánverjinn segir að hann hafi „valkosti“ og sé óviss um hvar hann muni enda. (Radio Nacional de Espana)

Bryan Mbeumo (25), framherji Brentford og Kamerún, vonast til að fá 250.000 pund í vikulaun - fimmföld núverandi laun hans - ef hann gengur til liðs við Manchester United. (Times)

Inter hefur haft samband við Cesc Fabregas, stjóra Como, um að þessi fyrrum spænski miðjumaður taki við sem nýr stjóri liðsins af Simone Inzaghi. (Sky Sports Italia)

John Textor, meðeigandi Crystal Palace og einnig eigandi franska liðsins Lyon, er að reyna að selja hlut sinn í enska félaginu. Ernirnir reyna að forðast að vera dæmdir úr Evrópudeildinni á næsta tímabili fyrir að brjóta reglur UEFA um eignarhald. (Mail),

Enski markvörðurinn Aaron Ramsdale (27) hefur átt í viðræðum um að fara til West Ham frá Southampton. Dýrlingarnir vonast til að fá 20 milljónir punda fyrir Ramsdale eftir fall liðsins úr úrvalsdeildinni. (Talksport)

Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric (39) hefur munnlega samþykkt að ganga til liðs við AC Milan þegar hann yfirgefur Real Madrid eftir HM félagsliða í sumar. (Gianluca di Marzio)
Athugasemdir
banner
banner