Freyr Alexandersson var augljóslega í sjöunda himni með glæsilegan sigur íslenska kvennalandsliðsins á því skoska í undankeppni fyrir EM 2017.
Liðin eru í toppbaráttu í undankeppninni og er líklegt að bæði lið komist á Evrópumótið enda með talsverða yfirburði í riðlinum.
Liðin eru í toppbaráttu í undankeppninni og er líklegt að bæði lið komist á Evrópumótið enda með talsverða yfirburði í riðlinum.
Lestu um leikinn: Skotland 0 - 4 Ísland
„Mér fannst þessi frammistaða mögnuð, ég trúði alveg að við myndum vinna en ég vissi alltaf að það yrði erfitt. Að vinna 4-0 hérna er algjörlega magnað og mér fannst frammistaðan eins nálægt 10 og hægt er að vera," sagði Freyr.
„Þær fengu víti í lokin annars man ég eiginlega ekki eftir neinu færi sem þær fengu. Gugga greip inn í allt sem kom og varnarleikur liðsins var gjörsamlega sturlaður. Hver einn og einasti leikmaður var með sitt hlutverk upp á 10.
„Þetta er orðið staðfest. Leikmennirnir vita það að ef þær spila vörnina eins og við viljum þá eru miklar líkur á að við vinnum."
Freyr segir að landsliðið ætli sér langt á Evrópumótinu og bendir á að enn sé mikill tími til stefnu fyrir mót.
„Ég fer ekkert í felur með það að við ætlum að gera einhverja hluti á EM. Það er alltof snemmt að tala eitthvað digurbarklega um það en við ættum að vera á frábærum stað þegar EM skellur á."























