Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 14:06
Elvar Geir Magnússon
Fótboltinn skipti ekki eins miklu eftir andlát Jota
Caoimhin Kelleher.
Caoimhin Kelleher.
Mynd: EPA
Stuðningsmenn minnast Jota.
Stuðningsmenn minnast Jota.
Mynd: EPA
Caoimhin Kelleher, fyrrum markvörður Liverpool, segir að frammistaðan og úrslitin skipti ekki eins miklu máli fyrir Liverpool á þessu tímabili vegna andláts Diogo Jota.

Jota lést í bílslysi síðasta sumar, 28 ára gamall. Jota skoraði 65 mörk í 182 leikjum fyrir félagið og hjálpaði því að vinna ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili.

Liverpool er sem stendur í sjötta sæti, fjórtán stigum á eftir Arsenal sem trónir á toppnum.

Kelleher yfirgaf Liverpool og gekk í raðir Brentford síðasta sumar og ræddi um áhrifin sem andlát Jota hafði í viðtali við The Independent.

„Fótboltinn er auðvitað risastór grein og fólk er með skoðun, sem er eðlilegt. Fólk býst við því að þú jafnir þig snöggt en þannig er þetta ekki," segir Kelleher.

„Mér finnst það smá skrítið og erfitt þegar ég heyri fólk tala um leikmenn Liverpool og þeirra frammistöðu því ég held að þetta tímabil sé ekki eins mikilvægt frá fótboltalegu sjónarhorni."

„Ég held sambandi við suma leikmenn Liverpool og á marga góða vini þar. Þetts er mjög erfitt fyrir þá, erfitt tímabil og kringumstæður sem fólk er líklega ekki mikið að taka inn í reikninginn. Fyrir mig hefur þetta auðveldara, með því að fara frá umhverfinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner