Karim Benzema fór í verkfall í janúar en samdi svo við Al-Hilal og skoraði þrennu í fyrsta leik sínum fyrir félagið.
31.01.2026 08:00
Hneykslaður Benzema neitar að spila
Hann hefur verið markahæsti leikmaður Al-Ittihad frá komu sinni til félagsins með 57 mörk í 87 leikjum á tveimur og hálfu ári.
Samningur hans átti að renna út næsta sumar en þegar hann fékk nýtt samningstilboð í janúar móðgaðist hann og ákvað að fara í verkfall. Benzema hafði fengið loforð um jafn góðan eða betri samning, en fékk þess í stað samning án fastra launa - hann hefði aðeins fengið greitt fyrir ímyndarréttinn sinn.
Stjórnendur Al-Ittihad kenndu stjórn sádi-arabísku deildarinnar um samningsmálin en í ljós kom að það var félagið sjálft sem vildi ekki láta framherjann taka svona mikið pláss á launaskránni. Hann skipti því yfir til toppliðs Al-Hilal, sem leikur undir stjórn Simone Inzaghi, og fékk samning sem gildir út næstu leiktíð - til sumarsins 2027.
Eftir að hafa skorað þrennu í fyrsta leik með Al-Hilal var Benzema spurður út í félagaskiptin, þar sem einhverjir fjölmiðlar í Sádi-Arabíu halda því fram að hann hafi ekki kvatt fyrrum liðsfélagana þegar hann yfirgaf Al-Ittihad.
„Tölum um leikinn," svaraði Benzema þegar hann var spurður út í félagaskiptin frá Al-Ittihad. Arabíski fréttamaðurinn spurði hann aðeins út í leikinn en var fljótur að skipta aftur um umræðuefni og spurði hvers vegna Benzema hafi ekki kvatt liðsfélagana sína í Al-Ittihad. Sú spurning pirraði hinn 38 ára gamla Benzema.
„Hvað? Veist þú það? Veist þú það?" svaraði Benzema hvasslega.
„Veist þú það? Nei þú veist það ekki. Spurðu þá (leikmennina). Spurðu þá."
Fótboltamenn í Sádi-Arabíu kvarta reglulega undan hegðun fréttamanna þar í landi sem virðast oft gera allt í sínu valdi til að búa til fyrirsagnir úr engu.
05.02.2026 20:20
Skoraði þrennu í fyrsta leiknum
???? “Why did you leave Al Ittihad?”
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 6, 2026
????? Karim Benzema: “Let’s talk about the match only. I feel a great vibe with this group and this club.”
???? On not saying goodbye to Al-Ittihad:
?????“Ask them… ask the Al-Ittihad players.”@MaanAlquiae ???????????? pic.twitter.com/kRwj3TWv80
Athugasemdir




