Franski framherjinn Karim Benzema gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrsta leik sínum með Al Hilal í 6-0 slátrun á Al Okhdood í sádi-arabísku deildinni í kvöld.
Benzema kom til Al Hilal frá keppinautunum í Al Ittihad á dögunum og lék fyrsta leikinn í kvöld.
Hann skoraði eftir hálftímaleik og bætti við öðru á 60. mínútu eftir stoðsendingu frá Malcom. Þrennan var fullkomnuð fjórum mínútum síðar.
Alvöru himnasending frá Al Ittihad og verður erfitt að sjá eitthvað annað lið en Al Hilal lyfta bikarnum í lok tímabils.
Salem Al Dawsari skoraði tvö mörk fyrir Al Hilal og Malcom eitt í þessum stóra sigri.
Það vakti athygli að Darwin Nunez, fyrrum leikmaður Liverpool, hafi ekki verið í hópnum hjá Al Hilal, en hann hefur verið orðaður við Fenerbahce í Tyrklandi. Glugginn í Tyrklandi lokar á morgun.
Al Hilal er á toppnum í sádi-arabísku deildinni með 50 stig, þremur meira en Al Ahli sem vann 2-0 sigur á Al Hazem í kvöld.
Cristiano Ronaldo og félagar í Al Nassr eru í 3. sæti með 36 stig, en Ronaldo verður ekki með Al Nassr gegn Al Ittihad á morgun þar sem hann er í verkfalli, meðal annars vegna þess að PIF (ríkissjóður Sádi-Arabíu) leyfði Benzema að fara til Al Hilal, en hann heldur því fram að sjóðurinn sé að gera upp á milli félaga með því að styrkja Al Ahli, Al Hilal og Al Ittihad meira en Al Nassr. Öll félögin eru í eigu ríkissjóðsins.
Another look at Karim Benzema’s back-heel goal for his new club Al-Hilal ???? pic.twitter.com/7TOQfEjXJg
— FOX Soccer (@FOXSoccer) February 5, 2026
Athugasemdir



