Chris Davies þjálfari Birmingham City er búinn að útskýra söluna á Willum Þór Willumssyni aftur til Hollands.
Willum var fenginn til Birmingham sumarið 2024 og reyndist lykilmaður fyrir liðið í League One deildinni. Birmingham vann deildina og fór upp í Championship.
Willum glímdi við tíð meiðsli á dvöl sinni hjá Birmingham og var frá keppni í þrjá mánuði nýliðið haust en fann ekki taktinn eftir endurkomuna á völlinn og var seldur til NEC Nijmegen.
„Maður óskar leikmönnum alltaf hins besta þegar þeir fara en í tilfellum eins og þessu þá vill maður virkilega koma því á framfæri. Ég hef sjaldan séð jafn mikinn fagmann á mínum ferli, hann er með svo jákvætt hugarfar og leggur gífurlega mikinn metnað í allt sem hann gerir á æfingasvæðinu," sagði Davies.
„Willum kom til okkar í League One og spilaði tíuhlutverkið frábærlega. Hann lenti oft í meiðslum og það voru alltaf bakslög. Hann komst af stað, var að gera vel og meiddist. Leikurinn endurtók sig nokkrum sinnum þar til hann var frá keppni í nokkra mánuði útaf meiðslum sem virtust sárasaklaus í fyrstu. Við vorum ekki jafn hættulegir í sóknarleiknum eftir að við misstum hann í þessi meiðsli."
Willum missti byrjunarliðssætið eftir að hafa unnið League One deildina en kom þó við sögu í flestum leikjum liðsins í Championship þegar hann var heill heilsu. Davies notaði Willum eftir að hann kom aftur úr meiðslunum og hefði haldið áfram að nota hann í vor.
„Ég bar alltaf traust til hans, þetta er leikmaður sem hleypur mikið, skilar sinni vinnu og er góður í fótbolta. Ég var ekki að reyna að fá hann út í janúar, hann hefði verið að berjast um byrjunarliðssæti í vor en Willum sjálfur vildi fá meiri spiltíma og þess vegna var hann seldur. Hollenska deildin er aðeins hægari og hann getur gert frábæra hluti þar, hann er með mjög góða tæknilega getu og er stór og sterkur strákur sem getur haldið boltanum vel."
Davies var mjög heiðarlegur í viðtalinu og talaði einnig um ástæður þess að Willum var ekki með fast byrjunarliðssæti í Championship deildinni.
„Mitt starf snýst um að taka ákvarðanir og mér fannst við eiga aðra leikmenn í hópnum sem gátu skilað inn fleiri mörkum og stoðsendingum heldur en Willum í þessari deild. Hann fann aldrei taktinn í Championship, tíð meiðsli settu strik í reikninginn og hann náði sér ekki aftur á strik með okkur.
„Yfir heildina litið gerði hann frábæra hluti fyrir okkur, við erum honum þakklátir fyrir hans framlag. Hann var algjör lykilmaður fyrir okkur í League One."
Athugasemdir


