Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   fös 06. mars 2026 23:19
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Þægilegur sigur hjá Ými - Stokkseyri vann
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Stokkseyri
Það fór einn leikur fram í B-deild Lengjubikars karla í kvöld þar sem Ýmir lagði KH að velli.

Emil Skorri Brynjólfsson, Styrmir Hjaltalín og Theodór Unnar Ragnarsson skiptu mörkunum á milli sín í 3-1 sigri. Ýmir komst í þriggja marka forystu áður en Birgir Ólafur Helgason minnkaði muninn.

Ýmir er með fjögur stig eftir þrjár umferðir. Einu stigi meira heldur en KH.

Í C-deildinni hafði Stokkseyri betur gegn KB á Domusnovavellinum í Breiðholti.

KB missti Kristófer Bæring Sigurðarson af velli með beint rautt spjald eftir 26 mínútur og réðu tíu leikmenn KB ekki við Stokkseyringa, svo lokatölur urðu 0-3. Arilíus Óskarsson var atkvæðamestur með tvennu.

Stokkseyri er með sex stig eftir þrjár umferðir og situr KB eftir með þrjú stig.

Ýmir 3 - 1 KH
1-0 Emil Skorri Þ. Brynjólfsson ('6)
2-0 Styrmir Hjaltalín ('20)
3-0 Theodór Unnar Ragnarsson ('51)
3-1 Birgir Ólafur Helgason ('60)

KB 0 - 3 Stokkseyri
0-1 Marteinn Maríus Marinósson ('31)
0-2 Arilíus Óskarsson ('37)
0-3 Arilíus Óskarsson ('75)
Rautt spjald: Kristófer Bæring Sigurðarson, KB ('26)
Athugasemdir
banner
banner