Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 20:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fær tveggja leikja bann fyrir olnbogaskotið í Kaplakrika
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Olga Sevcova, leikmaður ÍBV, hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann fyrir atvik sem átti sér stað í leik gegn FH fyrir viku síðan. Hún missir því af næstu tveimur leikjum ÍBV í Bestu deildinni.

Olga gaf Jónínu Linnet, leikmanni FH, olnbogaskot og slapp án refsingar í leiknum. Hægt er að sjá atvikið í hlekknum í greinninni hér fyrir neðan.

Lestu um leikinn: FH 3 -  0 ÍBV

Úr úrskuðinum: Erindið barst nefndinni 22. maí sl. og með tölvupósti sama dag var ÍBV veittur frestur til að skila greinargerð eða gera athugasemdir vegna málsins til kl. 12:00 þann 26. maí 2026. Engar athugasemdir bárust og var málið því tekið til úrskurðar á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Hér má lesa úrskurðinn í heild sinni
Slapp
banner
banner