Hollywood-lið Wrexham tekur á móti heims- og sambandsdeildarmeisturum Chelsea í 5. umferð enska bikarsins klukkan 17:45 í dag.
Ævintýri Wrexham er bókstaflega eitthvað sem maður sér vanalega bara í Hollywood-myndum og á liðið mögulega á því að halda áfram að skrifa sig í sögubækurnar í dag.
Liðið hefur farið þrisvar sinnum upp um deild í röð og reynir nú við að gera það í fjórða sinn.
Andstæðingurinn er ekki af verri endanum í dag. Það eru lærisveinar Liam Rosenior í Chelsea, en hann stillir upp sterku liði gegn velska liðinu.
Pedro Neto, Andrey Santos og Robert Sanchez eru á meðal þeirra sem byrja. Þó Chelsea sé með sterkt lið eru aðeins tveir sem byrjuðu í 4-1 sigrinum á Aston Villa á dögunum, þeir Alejandro Garnacho og Jorrel Hato.
Wrexham: Okonkwo; Cleworth, Hyam, Doyle; Longman, Dobson, O'Brien, Thomason; Vyner, Rathbone; Smith.
Chelsea: Sanchez; Tosin, Sarr, Badiashile; Acheampong, Lavia, Andrey Santos, Hato; Neto, Garnacho; Delap.
Athugasemdir



