Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
banner
   sun 07. maí 2023 21:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Origo vellinum
Addi: Hægt að kalla þetta hálfgerða rennilása sem fara upp og niður
Arnar Grétarsson.
Arnar Grétarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er ekki annað hægt," sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, spurður að því hvort hann væri ekki býsna sáttur eftir 5-0 sigur gegn KR í Bestu deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 5 -  0 KR

„Mér fannst við ráða ferðinni í fyrri hálfleik og skoruðum stórglæsileg mörk. Það hefði gert leikinn leiðinlegan en það var klárt víti og rautt spjald í stöðunni 2-0. Þá hefði leikurinn verið búinn. Sem betur fer hafði það ekki áhrif á leikinn. KR kom aðeins á okkur fyrsta korterið í seinni. Við erum oft sjálfum okkur verstir... en við kláruðum leikinn með fallegum mörkum. Ég er gríðarlega sáttur."

„Menn tala oft um þetta þriðja mark sem drepur leiki. Ég held að það hafi gert það í dag. Mér fannst við vera með stjórn á leiknum eiginlega allan tímann. KR sótti aðeins á okkur í seinni hálfleik en mér fannst þeir ekki skapa sér mikið," sagði Arnar glaður eftir leikinn og benti á þá óvæntu staðreynd að þetta er fyrsti deildarleikurinn í sumar þar Valur heldur hreinu.

Arnar hrósaði bakvörðunum sínum, Birki Má Sævarssyni og Sigurði Agli Lárussyni.

„Það er hægt að kalla þetta hálfgerða rennilása sem fara upp og niður. Þeir eru að spila gríðarlega vel eins og allt liðið."

Hægt er að horfa á allt viðtalið í spilaranum hér að ofan þar sem Arnar ræðir meðal annars um varnarleikinn og toppbaráttuna.
Athugasemdir
banner
banner