Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 17:08
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Isabella og Ísabel afgreiddu ÍA
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 0 - 2 HK
0-1 Isabella Eva Aradóttir ('60)
0-2 Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('73)

ÍA og HK áttust við í eina leik dagsins í B-deild Lengjubikars kvenna og var staðan markalaus í leikhlé í Akraneshöllinni.

Gestirnir úr Kópavogi skópu sigurinn í síðari hálfleik þegar Isabella Eva Aradóttir og Ísabel Rós Ragnarsdóttur skoruðu sitthvort markið og urðu lokatölur 0-2.

HK fer upp að hlið KR á toppi B-deildar, bæði lið eiga 7 stig eftir 3 umferðir. ÍA er með 4 stig eftir 4 umferðir.
Athugasemdir
banner