Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 17:51
Ívan Guðjón Baldursson
Marco Silva neitaði að gagnrýna dómarann
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Marco Silva þjálfari Fulham var vonsvikinn eftir óvænt tap á heimavelli gegn Southampton er liðin mættust í enska bikarnum í dag.

Southampton leikur í Championship deildinni og skóp nauman sigur með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Fulham átti mikið af marktilraunum í leiknum og kom boltanum tvisvar í netið, en ekki var dæmt mark. Í annað skiptið flautaði Jarred Gillett dómari alltof snemma í stað þess að beita hagnaðarreglunni og var Silva mjög ósáttur, en neitaði að gagnrýna dómgæsluna.

„Þetta eru mikil vonbrigðaúrslit eftir slaka frammistöðu hjá okkur. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir félagið og stuðningsmenn. Við verðum að horfa innávið og gera betur næst útaf því að þetta var ekki nógu gott," sagði Silva.

„Það er mjög margt sem við getum rætt um þennan leik en þetta er líklegast ekki rétta stundin til þess, það er mikið af tilfinningum akkúrat núna. Þetta er virkilega slæmur dagur fyrir okkur, við verðum að læra af þessu."

Silva segist ekki skilja hvers vegna var ekki dæmt mark þegar Fulham kom boltanum í netið í fyrri hálfleik.

„Ég fékk aldrei neina útskýringu þó ég hafi beðið um."

Vítaspyrnudómurinn í uppbótartíma sem réði úrslitum var einnig umdeildur en Silva neitaði að tjá sig frekar um dómgæsluna.

Silva var að lokum spurður út í liðsvalið sitt, þar sem hann gerði níu breytingar á byrjunarliðinu sem mætti til leiks í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku.

„Þetta er ákvörðun sem ég tók sem þjálfari liðsins. Ég skil spurninguna því níu breytingar eru níu breytingar, en þrátt fyrir það eru þetta leikmenn sem hafa spilað rullu á deildartímabilinu. Flestir þeirra eru búnir að byrja 10 eða 15 úrvalsdeildarleiki á tímabilinu."
Athugasemdir
banner