„Við spiluðum ágætis leik í dag við frábærar aðstæður miðað við árstíma. Við fengum færi en því miður datt það ekki okkar megin," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir 2-1 tapið gegn Víkingi Ólafsvík í dag.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 2 - 1 Valur
„Fyrra markið var klaufaskapur af okkar hálfu. Seinna markið var eins og mörk eru, það er ekki dekkað og þá kemur mark."
Valsmenn töpuðu 2-1 gegn Fjölni í fyrstu umferðinni og eru því án stiga.
„Við erum með ekkert stig en við höfum verið að gera ágætis hluti. Við þurfum að taka okkur saman í andlitinu og bæta aðeins við okkur og við gerum það."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















