Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 15:52
Elvar Geir Magnússon
Ásakanir um að verið sé að reyna að flauta titilinn til Ronaldo
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: EPA
Ivan Toney.
Ivan Toney.
Mynd: EPA
Ivan Toney og liðsfélagar hans í Al-Ahli hafa gefið það í skyn að verið sé að reyna að gera keppinautana í Al-Nassr, með Cristiano Ronaldo innanborðs, að meisturum í Sádi-Arabíu.

Toney var meðal leikmanna sem komu með þessar ásakanir eftir að Al-Ahli gerði 1-1 jafntefli gegn Al-Fayha í gær. Al-Ahli er nú í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir Ronaldo og félögum sem eru á toppnum og eiga leik til góða.

Toney skoraði 27. mark sitt á tímabilinu í gær en hann telur að sitt lið hafi verið snuðað um tvo vítaspyrnudóma í leiknum og grunar dómarana um græsku.

„Þetta voru augljósar vítaspyrnur. Fyrr á tímabilinu hefði klárlega verið dæmt en nú þegar nálgast úrslitastund er búið að breyta þessu," sagði Toney í viðtali eftir leik og var þá spurður að því hverjir myndi hagnast á þessu?

„Við vitum hver, hvern erum við að elta?" svaraði Toney hlæjandi og var þar að vísa í Ronaldo. Hann birti svo myndbönd af þessum atvikum á samfélagsmiðlum þar sem hann tjáði sig nánar.

Liðsfélagi Toney, Brasilíumaðurinn Galeno, tók í sama streng í viðtölum og sagði að Sádi-Arabar vildu færa einum ákveðnum einstaklingi titilinn.

Ef Al-Nassr vinnur meistaratitilinn verður það fyrsti deildarmeistaratitill Ronaldo á fjórum tímabilum með félaginu.


Slapp
banner
banner