Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   lau 11. apríl 2026 19:40
Snæbjört Pálsdóttir
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Eimskip
Hlín Eiríksdóttir segir íslenska liðið þurfa að skora til að ná úrslitum.
Hlín Eiríksdóttir segir íslenska liðið þurfa að skora til að ná úrslitum.
Mynd: EPA
Hlín segir fókusinn vera alfarið á Úkraínuleiknum.
Hlín segir fókusinn vera alfarið á Úkraínuleiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir segir íslenska landsliðið ekki geta sætt sig við markaleysi síðasta landsliðsglugga og leggur áherslu á að liðið þurfi að skila mörkum þegar það mætir Úkraínu og Englandi í komandi heimaleikjum.

„Ég er mjög spennt að spila þessa leiki. Elska að spila með landsliðinu, það er rosa gaman að koma heim og æfa með þessum hópi. Við erum að stefna á heimsmeistaramótið núna sem er auðvitað alvöru gulrót þannig að ég er mjög spennt.“


Fókusinn innan hópsins er skýr að hennar sögn.

„Það eru vissulega þrjú stig í boði í báðum leikjum þannig að við erum að keppa um það sama í rauninni í Úkraínuleiknum og Englandsleiknum. Að sjálfsögðu er England hærra skrifað lið þannig að við eigum kannski að hafa möguleika á að stjórna leiknum á móti Úkraínu aðeins betur með boltann þá allavega. Eins og staðan er núna eru við bara að einbeita okkur að honum."

„Við höfum ekki sagt orð um Englandsleikinn. Klárum Úkraínuleikinn fyrst og sjáum svo hvað við þurfum að gera fyrir Englandsleikinn.“

Hlín segir að liðið þurfi að nýta boltann betur til að ná úrslitum.

„Við þurfum að vanda okkur þegar við erum með boltann, við getum oft gert betur með hann. Þannig að við þurfum að vanda okkur og refsa þeim og auðvitað að spila varnarleikinn vel, þá held ég að við getum unnið þær.“

Sóknarleikurinn er þó lykilatriði eftir síðasta verkefni.

„Já að sjálfsögðu getum við ekki sætt okkur við það að skora ekki mörk þó það sé á móti bestu liðum í heimi. Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori. Ef við setjum ekki þá pressu á okkur þá veit ég ekki hver á að gera það. Þannig að sjálfsögðu stefnum við á það að skora í þessum leikjum.“

Hlín segir stemninguna í hópnum góða fyrir komandi verkefni.

„Góð, hún er eiginlega alltaf bara mjög góð í þessum hópi. Ekkert nýtt þar, hún er bara mjög góð.“

Hún vonast til að stuðningur úr stúkunni skili liðinu aukakrafti.

„Já það skiptir mjög miklu máli. Nú erum við að spila á Laugardalsvellinum í fyrsta sinn í smá tíma. Vonandi hefur fólk áhuga á að koma þangað og sjá okkur spila og við reynum að skila góðum fótbolta til baka.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner