Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
   lau 11. apríl 2026 14:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Orri Steinn skoraði í mjög svekkjandi jafntefli
Mynd: EPA
Real Sociedad 3 - 3 Alaves
0-1 Duje Caleta-Car ('3 , sjálfsmark)
1-1 Luka Sucic ('14 )
1-2 Ibrahim Diabate ('24 )
2-2 Antonio Sivera ('27 , sjálfsmark)
3-2 Orri Oskarsson ('60 )
3-3 Lucas Boye ('90 )
Rautt spjald: Sergio Gomez, Real Sociedad ('90)

Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Real Sociedad sem fékk Alaves í heimsókn í spænsku deildinni í dag.

Liðin skiptust á að skora í fyrri hálfleik en staðan var 2-2 eftir tæplega hálftíma leik.

Orri Steinn kom Sociedad yfir þegar hann skoraði örugglega eftir að Takefusa Kubo flikkaði boltanum á hann inn á markteignum. Þetta var fimmta deildarmarkið hans á tímabilinu.

Sergio Gomez, varnarmaður Socieidad, fékk að líta rauða spjaldið þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Fjórum mínútum síðar gerðii Lucas Boye sér lítið fyrir og skoraði fyrir Alaves og tryggði liðinu stig.

Sociedad er sem stendur í 7. sæti með 42 stig. Alaves er í 15. sæti með 33 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 30 25 1 4 80 29 +51 76
2 Real Madrid 31 22 4 5 65 29 +36 70
3 Villarreal 30 18 4 8 54 35 +19 58
4 Atletico Madrid 30 17 6 7 50 30 +20 57
5 Betis 30 11 12 7 44 37 +7 45
6 Celta 30 11 11 8 44 37 +7 44
7 Real Sociedad 31 11 9 11 49 48 +1 42
8 Getafe 30 12 5 13 27 31 -4 41
9 Osasuna 30 10 8 12 36 37 -1 38
10 Espanyol 30 10 8 12 36 44 -8 38
11 Athletic 30 11 5 14 32 43 -11 38
12 Girona 31 9 11 11 33 45 -12 38
13 Valencia 31 9 9 13 34 45 -11 36
14 Vallecano 30 8 11 11 29 35 -6 35
15 Alaves 31 8 9 14 35 46 -11 33
16 Mallorca 30 8 7 15 36 48 -12 31
17 Sevilla 30 8 7 15 37 50 -13 31
18 Elche 31 6 12 13 38 47 -9 30
19 Levante 30 6 8 16 34 50 -16 26
20 Oviedo 30 5 9 16 21 48 -27 24
Slapp
banner
banner