Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   fim 09. apríl 2026 19:01
Ívan Guðjón Baldursson
Marco Silva sektaður og dæmdur í bann
Mynd: EPA
Marco Silva þjálfari Fulham hefur verið dæmdur í eins leiks hliðarlínubann eftir ummæli sem hann lét falla fyrir rétt rúmum mánuði síðan.

Silva var ósáttur með dómgæsluna í óvæntu tapi á heimavelli gegn West Ham 4. mars. Hann gagnrýndi dómarann Matt Donohue og VAR-dómarann John Brooks fyrir að dæma víti fyrir Fulham og hætta svo við eftir nánari athugun.

Auk þess að vera dæmdur í eins leiks bann þarf Silva að greiða 90 þúsund pund í sekt fyrir ummælin.

Fulham hefur áfrýjað ákvörðuninni og verður Silva því á hliðarlínunni þegar Fulham heimsækir Liverpool um helgina.

Fulham er í harðri evrópubaráttu í ensku úrvalsdeildinni, liðið er fimm stigum frá meistaradeildarsæti með 44 stig eftir 31 umferð.
Slapp
banner