Elmar Örn Guðmundsson er á leið í sitt sjöunda tímabil með meistaraflokki Völsungs. Hann er varnarsinnaður miðjumaður sem uppalinn er hjá félaginu.
Á síðustu þremur tímabil hefur hann sýnt mikinn stöðugleika og spilað akkúrat 20 deildarleiki öll tímabilin. Hann lék ekkert tímabilið 2022 en tók skóna af hillunni og mætti aftur fyrir '23 tímabilið. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Á síðustu þremur tímabil hefur hann sýnt mikinn stöðugleika og spilað akkúrat 20 deildarleiki öll tímabilin. Hann lék ekkert tímabilið 2022 en tók skóna af hillunni og mætti aftur fyrir '23 tímabilið. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Elmar Örn Guðmundsson
Gælunafn: Emmi er það sem hefur verið mest notað
Aldur: 25 ára
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það hefur örugglega verið einhver Kjarnafæði mótsleikur en KSÍ leikur var 2019 gegn Leikni Fásk og man að ég var boðinn velkominn strax með góðri tæklingu.
Uppáhalds drykkur: Hreinskilni þá er það appelsínusafi eða Rjúpan
Uppáhalds tölvuleikur: Ef ég spila þá er það yfirleitt Call of Duty.
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Eiga það ekki flest allir í dag
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Peaky Blinders
Uppáhalds tónlistarmaður: Bubbi
Uppáhalds hlaðvarp: Blö
Uppáhalds samfélagsmiðill: Þetta er allt leiðinlegt
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: .net
Fyndnasti Íslendingurinn: PJ
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Sending JD014600010362376471 kemur milli kl. 13:00 og 16:00 i dag ad Storholl 53, 640 Husavik.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Ætli það sé ekki Magni
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Kemur enginn sérstakur upp í hugann en gef Balde í Vestra þetta eftir alla þessa neikvæðni undanfarið.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: AJ: Alli Jói
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Guðmundur Óli þjálfari Magna
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Stevie G
Sætasti sigurinn: Sá sem er efst i minninu er Fylkir úti í fyrra.
Mestu vonbrigðin: Fá Vestra aftur í deildina og þurfa að taka 8-9 tíma ferðalag í sumar
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Fá Óla markvörð HK aftur á víkina væri stórt.
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Auður og Bella í Völsung eru efnilegustu á landinu.
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Haxgrímur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Pass á mig þarna
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi eða C.Ronaldo, þið megið velja.
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Úff þessi löngu innköst eru alveg drep. Breytum innköstum einhvern veginn
Uppáhalds staður á Íslandi: Fagraneskot í Aðaldal.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: 2019 leikur á móti Tindastól, kem inná beint í markspyrnu hjá okkur, við setjum hann langann upp, ég hoppa upp í boltann og man svo lítið eftir það.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei ekkert þannig
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ekkert sérstaklega en hef gaman af flestum íþróttum.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Tiempo
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Skóli yfirhöfuð ekki mitt sterkasta
Vandræðalegasta augnablik: Sjálfsmörk eru vandræðaleg, ég á eitt þannig.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Bruno, Cunha og Mbuemo. Það er lítið að gera hjá þeim þessa dagana.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Geiri sjúkraþjálfari þegar hann mætir.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Væri til í sjá Tomma í einhverjum svona ástar þáttum
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Spila aldrei í innanundir treyju
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Allir þessir Spánverjar eru lúmskt klikkaðir á góðan hátt
Hverju laugstu síðast: Að ég væri lasinn
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaup án bolta er eitthvað sem mér finnst yfirhöfuð leiðinlegt.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Bjartari tímar framundan og mætum á völlinn, það er miklu skemmtilegra þannig.

