Spánarmeistarar FC Barcelona eru ósáttir eftir 0-2 tap á heimavelli gegn Atlético Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Pau Cubarsí braut af sér sem aftasti varnarmaður og fékk beint rautt spjald fyrir að ræna upplögðu marktækifæri. Aukaspyrna var dæmd og skoraði Julián Alvarez magnað mark beint úr spyrnunni.
Tíu Börsungar sýndu flottan leik en þeim tókst ekki að skora svo þeim bíður afar erfitt verkefni í seinni leiknum, eftir að hafa einnig verið slegnir úr leik í spænska bikarnum af Atlético en þá voru Börsungar einnig gríðarlega ósáttir með dómgæsluna.
Stjórnendur Barcelona hafa því ákveðið að leggja inn formlega kvörtun til UEFA, evrópska fótboltasambandsins.
Málið snýst um atvik á 54. mínútu leiksins þegar Marc Pubill varnarmaður Atlético snertir boltann með hendi innan vítateigs þegar gestaliðið var að taka markspyrnu. Juan Musso sendi boltann á Pubill sem hélt að leikurinn væri ekki byrjaður, svo hann stöðvaði boltann með hendinni og gaf svo stutta sendingu aftur á Musso.
Leikmenn Barcelona kvörtuðu en István Kovács rúmenskur dómari leiksins sá ekki ástæðu til að flauta.
„FC Barcelona lítur á þessa ákvörðun, sem og aðgerðarleysi VAR-teymisins, sem risastór mistök af hálfu dómarateymisins. Þess vegna hefur félagið beðið um að málið verði rannsakað," segir meðal annars í tilkynningu frá Börsungum.
Þar fer félagið fram á að fá senda upptöku af samræðum á milli dómarateymisins og að regluferli dómara verði breytt með viðeigandi hætti, auk þess að vilja opinbera afsökunarbeiðni frá UEFA.
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem óútskýranlegar dómaraákvarðanir í Meistaradeildinni hafa mikil og neikvæð áhrif á liðið. Þessar ákvarðanir koma í veg fyrir að liðið geti keppt við andstæðinga sína á sanngjörnum grundvelli."
08.04.2026 23:32
Flick: Þeir áttu líka að fá rautt spjald
Pubill picking up the ball with his hands after Musso starts the play (no penalty)
by
u/ElAutistaDeHamelin in
soccer


