Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Anderson meiddist á aftanverðu læri í 1-1 jafntefli Íslands og Haítí í vináttulandsleik á síðasta degi marsmánaðar.
Mikael byrjaði leikinn en fór meiddur af velli á 72. mínútu.
Mikael spilar ekki fyrir lið sitt, Djurgarden í Svíþjóð, næstu vikurnar. Í pósti á Instagram segist hann ákveðinn í að koma enn sterkari til baka eftir meiðslin.

„Hann er geggjaður leikmaður. Hann er með sigurhugarfar og ákveðni, það er vont fyrir þá að missa hann. Að hann meiddist er eitt það versta sem gat gerst fyrir Djurgarden," segir sænski sparkspekingurinn Alexander Axén.
Djurgarden vann 1-0 útisigur gegn GAIS, án Mikaels, í fyrsta leik sínum í sænsku úrvalsdeildinni.