Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   sun 12. apríl 2026 19:42
Kári Snorrason
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vann dramatískan sigur á Keflavík á Meistaravöllum fyrr í dag. Keflavík var með 2-1 forystu þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en KR-ingar sneru taflinu við og uppskáru 3-2 sigur.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, ræddi við Fótbolta.net eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 3 -  2 Keflavík

„Ég er ekki endilega viss um að við höfum gert nóg til að eiga skilið að vinna þennan leik en ég er heldur ekkert viss um það að þetta hafi verið ósanngjörn niðurstaða. Eins gaman og það er að vinna leiki og koma til baka úr stöðu sem leit ekkert voða vel út.

Við áttum í vandræðum með að opna þá stóran hluta leiksins. En þetta opnaðist aðeins þegar við vorum komnir undir og við náðum aftur smá takti. Hefðum í raun getað skorað fleiri mörk undir lokin. Það er sterkt að koma til baka, það er ekki auðvelt og við þurfum að kunna meta það líka,“
sagði Óskar og hélt áfram.

„Þetta var frammistaða sem við vitum að var ekki nægilega góð af okkar hálfu. Ég held að við höfum lent í því í fyrra að svona frammistaða hefði skilað okkur 4-3 tapi.

Mér líður eins og með því að klára þennan leik eins og við kláruðum hann þá höfum við tekið stórt þroskastig. Maður tekur það með sér. Maður verður að læra þiggja og meta sigrana, því þeir eru sjaldnast þannig að þú spilir frábærlega og pakkir andstæðingnum saman,“
sagði Óskar að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner