„Ég stend við gefin loforð," sagði Egill Einarsson, Gillzenegger, við Blaðið síðari hluta ársins 2007. Hann mun hafa lofað á bloggsíðu sinni að hlaupa nakinn í Kringlunni og syngja lagið Every Breath You Take ef dómarinn Garðar Örn Hinriksson myndi dæma vítaspyrnu handa Breiðabliki í efstu deild.
Rio Ferdinand sagðist í dag ætla að hlaupa nakinn ef Cristiano Ronaldo myndi ekki hljóta Gullknöttinn og í tilefni þess rifjaði Garðar upp loforðið á Facebook-vegg sínum.
„Fyrir einhverjum árum síðan lofaði þjóðþekktur einstaklingur því að hlaupa um nakinn í Kringlunni ef ég gerði ákveðinn hlut. Stuttu síðar gerðist það en aldrei hljóp vinurinn," skrifaði Garðar á Facebook.
Garðar og Egill elduðu grátt silfur saman á sínum tíma en náðu sögulegum sættum í útvarpsþættinum Skjálfanda sem Henry Birgir Gunnarsson stýrði á X-inu.
Sjá einnig:
Gillzenegger hleypur nakinn í Kringlunni (mbl.is 2007)
Athugasemdir