Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. ágúst 2019 06:00
Arnar Helgi Magnússon
Umboðsmaður Sneijder skilur hvorki upp né niður
Mynd: Getty Images
Wesley Sneijder staðfesti í gær að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna eftir glæstan atvinnumannaferil.

Umboðsmaður Sneijder, Guido Albers, hafði ekki hugmynd að Sneijder ætlaði að segja frá þessu á þennan hátt.

„Þetta var mjög óvænt og ég vissi ekki að þetta ætti að gerast strax eða á þennan hátt," sagði Albers.

„Við erum með skipulagðan fund á fimmtudaginn og þar ætluðum við að ræða möguleikana sem í boði eru og ef að þetta yrði niðurstaðan, þá myndum við ræða hvernig við myndum tilkynna þetta."

„Við sjáum á fimmtudag hvort þessi ákvörðun er endanleg," sagði Albers að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner