Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 15. maí 2020 23:00
Aksentije Milisic
Chiellini um Vidal: Áfengi var hans veikleiki
Vidal í leik með Juventus.
Vidal í leik með Juventus.
Mynd: Getty Images
Giorgio Chiellini, fyrirliði Juventus, gaf út ævisögu sína á dögunum. Þar gagnrýndi hann á m.a. Felipe Melo og Mario Balotelli en þeir voru ekki lengi að svara fyrir sig.

Chiellini talar líka um Arthuro Vidal, leikmann Barcelona, í bókinni en þeir tveir unnu ítölsku deildina fjórum sinnum saman á sínum tíma.

„Vidal fór stundum út á lífið og drakk meira heldur enn hann átti að gera. Allir vissu það. Það er hægt að segja að áfengi hafi verið hans veikleiki," sagði Chiellini um Vidal.

„Hins vegar vekur það ekki upp spurningar um hvers konar manneskja Vidal var, eða hvort hann væri sigurvegari. Veikleikar eru hluti af mannlegu eðli. Það sem skipti máli hins vegar var það hvaða afleiðingar þetta myndi hafa á leikmannahópinn."

..Hann slakaði samt aldrei á, þvert á móti. Það eru til ákveðnar aðferðir sem geta gert þig sterkari en áður," sagði Chiellini.
Athugasemdir
banner
banner
banner