Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 17. júní 2021 17:54
Victor Pálsson
EM: De Bruyne frábær í sigri gegn Dönum
Mynd: Getty Images
Denmark 1 - 2 Belgium
1-0 Yussuf Poulsen ('2 )
1-1 Thorgan Hazard ('55 )
1-2 Kevin de Bruyne ('70 )

Nú var hörkuleik á EM alls staðar að ljúka er Danir og Belgar áttust við í riðli B. Spilað var í Danmörku.

Danmörk tapaði fyrsta leik sínum 1-0 gegn Finnum á meðan Belgar völtuðu yfir Rússland, 3-0.

Danir byrjuðu leikinn af krafti í dag og voru komnir yfir með marki frá Youssuf Poulsen eftir aðeins tvær mínútur.

Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks en á 55. mínútu skoraði Thorgan Hazard mark fyrir Belga og jafnaði metin.

Kevin de Bruyne lagði upp það mark en hann mætti aftur í lið Belga í leik dagsins eftir meiðsli.

Það var svo De Bruyne sem tryggði Belgum stigin þrjú 15 mínútum seinna eftir undirbúning Eden Hazard.

Lokatölur 2-1 fyrir Belgum í Kaupmannahöfn sem eru á leið í 16-liða úrslitin.
Athugasemdir
banner
banner
banner