Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   fim 19. febrúar 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Infantino í áfalli: Ekkert pláss fyrir fordóma
Mynd: EPA
Gianni Infantino, afar umdeildur forseti FIFA sambandsins, hefur tjáð sig um mál Vinícius Júnior frá því á þriðjudagskvöldið.

Vinícius skoraði eina mark leiksins í sigri Real Madrid gegn Benfica í Meistaradeildinni og sakar hann Argentínumanninn Gianluca Prestianni um að hafa verið með kynþáttafordóma. Samherji hans og ofurstjarnan Kylian Mbappé tók sterklega undir ásakanirnar.

„Það var áfall þegar ég heyrði af atvikinu um meinta kynþáttafordóma í garð Vinícius Júnior í meistaradeildarleik Benfica og Real Madrid," sagði Infantino í yfirlýsingu á opinberum aðgangi FIFA á samfélagsmiðlinum X.

„Það er alls ekkert pláss fyrir kynþáttafordóma í íþróttinni okkar eða í samfélaginu í heild. Við þurfum að fá alla hlutaðeigandi hagsmunaaðila til að grípa til aðgerða og draga þá seku til ábyrgðar."

   17.02.2026 23:21
Mbappe: Á aldrei aftur að fá að spila í Meistaradeildinni

Athugasemdir
banner