UFEA, fótboltasamband Evrópu, hefur hafið rannsókn á því sem gerðist í leik Benfica og Real Madrid í Meistaradeildinni í vikunni.
Leikurinn var stöðvaður í tíu mínútur eftir að Vinicius hljóp upp að dómaranum Francois Letexier og sagðist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum.
Leikurinn var stöðvaður í tíu mínútur eftir að Vinicius hljóp upp að dómaranum Francois Letexier og sagðist hafa orðið fyrir kynþáttafordómum.
Eftir að Vinicius hafði skorað eina mark leiksins og fagnað fyrir framan stúkuna þá sagði Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, eitthvað við hann en setti treyjuna yfir munn sinn þegar hann gerði það, svo ómögulegt er með varalestri að greina hvað hann sagði.
Vinicius og leikmenn Real Madrid segja Prestianni hafa verið með kynþáttaníð í garð Vinicius. Prestianni neitar því og Benfica styður frásögn leikmannsins.
UEFA er nú að rannsaka málið en Prestianni gæti farið í allt að tíu leikja bann ef hann verður dæmdur sekur. Fordæmi eru fyrir því en Ondrej Kudela, þáverandi leikmaður Slavia Prag, var dæmdur í tíu leikja bann fyrir kynþáttafordóma í garð Glen Kamara, sem lék þá með Rangers, árið 2021.
Athugasemdir




