Víkingar tóku á móti Lettneska liðinu Riga FC þegar seinni leikurinn í þeirra einvígi fór fram á Víkingsvelli nú í kvöld. Riga FC leiddi einvígið fyrir leikinn með tveimur mörkum en eftir leikinn í dag er Víkingur úr leik í Sambandsdeild Evrópu þrátt fyrir 1-0 sigur á Riga í Víkinni í kvöld en Lettneska liðið fer samanlagt áfram, 2-1.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 0 Riga FC
„Bara fínar og sérstaklega seinni hálfleikurinn en þá sýndum við okkar rétta andlit fannst mér og ef þetta annað mark hefði dottið er ég 100% á því að við hefðum klárað þetta." Sagði Ingvar Jónsson markvörður Víkinga eftir leikinn í kvöld.
Það var rosalegt momentum með Víkingum undir lok síðari hálfleiks og eftir að Víkingar voru búnir að ná inn marki herjuðu Víkingar á Riga en náðu ekki markinu til að komast í framlengingu.
„Mér fannst það og leið þannig, það var komið panic í þá síðustu 10 mín - korterið. Þeir voru bara að bíða eftir að dómarinn flautaði þetta af og hefðu gjörsamlega sprungið held ég ef við hefðum náð þessu öðru marki held ég því við áttum nóg inni."
„Þetta fer svolítið frá okkur úti eins og Arnar hefur sagt þá áttum við off dag en héldum þessum lifandi 2-0 var ekkert óvinnandi eins og sást í dag og við héldum þessu spennandi og þetta var spennandi alveg fram að lokasekúndum þannig að gríðarlega svekkjandi að hafa ekki náð að pota inn öðru."
Víkingar eru nú úr leik í Evrópukeppni svo fókusinn fer núna á fullt í að endurtaka leikinn frá því 2021 þegar þeir unnu tvöfalt.
„Klárt mál. Það er ekki eins og þetta séu einhver endalok fyrir okkur. Mögulega geta einhverjir sagt að þetta sé jákvætt fyrir okkur að þessi ferðalög og þessir næstu leikir séu ekki að trufla okkur í deildinni og núna getum við bara haft fullan fókus þar og bara klárað þetta með stæl og tyggt okkur titilinn og betri stöðu í Evrópu á næsta ári."























