City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikið umdeilda í Lundúnum: „Þetta er sending til baka“
Jose Sá tók boltann upp eftir sendingu frá liðsfélaga sínum
Jose Sá tók boltann upp eftir sendingu frá liðsfélaga sínum
Mynd: EPA
Umdeilt atvik kom upp í leik Brentford og Wolves í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, atvik sem hafði mikil áhrif á leikinn, en það kom í kringum fyrra mark gestanna.

Brentford var að sigla með tveggja marka forystu inn í hálfleikinn er Adam Armstrong minnkaði muninn og veitti Úlfunum innblástur inn í hálfleikinn.

Hálfri mínútu áður en markið var skorað átti Ladislav Krejci, leikmaður Wolves, sendingu til baka á Jose Sá, markvörð liðsins, sem tók boltann upp.

Samkvæmt reglunum hefði átt að dæma óbeina aukaspyrnu, en vallardómarar sáu ekkert athugavert við þetta og í kjölfari skoraði Wolves markið. VAR gat ekki skorist inn í leikinn og lét vallardómara taka ákvörðun.

Þeir komu síðan vel stemmdir inn í síðari hálfleikinn, náðu í jöfnunarmark og voru nálægt því að vinna leikinn, en Jamie Carragher, sparkspekingur á Sky, segir að Úlfarnir hafi haft heppnina með sér í þessu atviki.

„Þetta er sending til baka. Hann er augljóslega að reyna að senda boltann til baka og þeir voru svolítið heppnir þarna. Það átti samt margt eftir að gerast áður en þeir skora markið,“ sagði Carragher á Sky.


Jose Sa picks up a back-pass in the buildup for Wolves goal against Brentford, goal stands
by
u/977x in
soccer

Athugasemdir
banner
banner