Keith Andrews, stjóri Brentford, segir fyrra mark Wolves, sem Adam Armstrong skoraði, hafi breytt leiknum, en samkvæmt reglunum hefði það aldrei átt að standa.
Brentford var 2-0 yfir gegn Úlfunum í Lundúnum áður en Armstrong skoraði.
Rétt áður en Armstrong skoraði fékk Jose Sá, markvörður Wolves, sendingu til baka frá liðsfélaga sínum og tók boltann upp með höndunum. Dómarinn og aðstoðarmenn hans töldu að snerting hafi verið á milli leikmanns Brentford og Wolves áður en hann fór til Sá, en svo var ekki.
Markið kom hálfrí mínútu síðar og náði Wolves síðan að jafna metin í síðari hálfleiknum.
„Mér fannst vera nóg af dómurum á og í kringum völlinn til þess að sjá það hvort þetta hafi verið sending til baka eða ekki. Það að ég sé spurður svona mikið út í þetta í viðtölum gefur sterklega til kynna að flestir séu á því máli að þetta hafi verið sending til baka.“
„Ég ætla ekki að koma með einhverjar afsakanir. Ég er bara að tjá mig um atvik sem minnkaði muninn í 2-1 og gerði þetta að allt öðrum leik þegar gengið var til búningsherbergja,“ sagði Andrews.
Hann var eðlilega vonsvikinn með úrslitin en Brentford hefur ekki unnið heimaleik síðan í byrjun janúar.
„Við erum vonsviknir en þurfum líka að skilja af hverju við erum vonsviknir. Við sköpuðum nokkur færi og mér fannst eins og við hefðum getað skorað fleiri mörk ef við hefðum verið aðeins skilvirkari og ákvörðunatökur betri. Í seinni hálfleik vildi ég að við kæmum aðeins áræðnari til leiks en við náðum aldrei stjórn á leiknum eins og í fyrri. Við vorum ekki að gera grunnatriðin rétt og við erum auðvitað svekktir með það.“
Úlfarnir hafa verið að spila vel að undanförnu og var Andrews spurður út í þeirra spilamennsku. Hann segir að sumir leikmenn gætu þurft að líta í spegil og spyrja sig af hverju þeir séu á botninum.
„Það er eitthvað sem þeir geta rætt sín á milli. Svona mikið við hvar þeir eru staddir á töflunni þá er alveg fremur augljóst að þeir hafi bætt leik sinn. Sumir af þessum leikmönnum þurfa að líta í spegil og spyrja sig af hverju þeir eru í þessari stöðu. Það er fullt af hæfileikum í þessu liði og þeir geta skapað vandamál fyrir öll lið, en eins og ég segi þá er þetta umræða sem Rob og annað fólk ætti að ræða.“
Hver verða skilaboð Andrews til Brentford-manna?
„Þau verða frekar einföld. Ef við spilum eins og við gerðum í seinni hálfleiknum þá verðum við í miklum vandræðum, en ef við spilum eins og við gerðum í fyrri hálfleiknum þá munum við klára tímabilið á góðum nótum,“ sagði Andrews.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 31 | 21 | 7 | 3 | 61 | 22 | +39 | 70 |
| 2 | Man City | 30 | 18 | 7 | 5 | 60 | 28 | +32 | 61 |
| 3 | Man Utd | 30 | 15 | 9 | 6 | 54 | 41 | +13 | 54 |
| 4 | Aston Villa | 30 | 15 | 6 | 9 | 40 | 37 | +3 | 51 |
| 5 | Liverpool | 30 | 14 | 7 | 9 | 49 | 40 | +9 | 49 |
| 6 | Chelsea | 30 | 13 | 9 | 8 | 53 | 35 | +18 | 48 |
| 7 | Brentford | 30 | 13 | 6 | 11 | 46 | 42 | +4 | 45 |
| 8 | Everton | 30 | 12 | 7 | 11 | 34 | 35 | -1 | 43 |
| 9 | Newcastle | 30 | 12 | 6 | 12 | 43 | 43 | 0 | 42 |
| 10 | Bournemouth | 30 | 9 | 14 | 7 | 44 | 46 | -2 | 41 |
| 11 | Fulham | 30 | 12 | 5 | 13 | 40 | 43 | -3 | 41 |
| 12 | Brighton | 30 | 10 | 10 | 10 | 39 | 36 | +3 | 40 |
| 13 | Sunderland | 30 | 10 | 10 | 10 | 30 | 35 | -5 | 40 |
| 14 | Crystal Palace | 30 | 10 | 9 | 11 | 33 | 35 | -2 | 39 |
| 15 | Leeds | 30 | 7 | 11 | 12 | 37 | 48 | -11 | 32 |
| 16 | Tottenham | 30 | 7 | 9 | 14 | 40 | 47 | -7 | 30 |
| 17 | Nott. Forest | 30 | 7 | 8 | 15 | 28 | 43 | -15 | 29 |
| 18 | West Ham | 30 | 7 | 8 | 15 | 36 | 55 | -19 | 29 |
| 19 | Burnley | 30 | 4 | 8 | 18 | 32 | 58 | -26 | 20 |
| 20 | Wolves | 31 | 3 | 8 | 20 | 24 | 54 | -30 | 17 |
Athugasemdir



