Kvennalandsliðið mætir Serbíu í undankeppni HM þann 31. október næstkomandi. Leikmannahópurinn var opinberaður á fréttamannafundi í dag.
„Við förum til Serbíu á mánudag og það kemur ekkert annað til greina en að fá þrjú stig," segir landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson.
Ólína Viðarsdóttir hefur æft með liðinu en er meidd og ekki í hóp. Margrét Lár Viðarsdóttir og og Sif Atladóttir fóru meiddar af velli í leikjum sínum um helgina en eiga að vera leikfærar gegn Serbíu.
Ísland tapaði fyrir Sviss í fyrsta leik sínum í undankeppninni.
„Það er nokkuð mikið sem þarf að bæta. Ég er að reyna að skoða heildarmyndina í því hvað liðið þarf að bæta. Ég tel mig með þokkalega yfirsýn yfir það. Við ætlum að fara til Serbíu og spila kröftugan varnarleik sem ein heild og skapa okkur betri sóknarstöður. Við höfum alla hæfileika í það."
Freyr mun fara fyrr út til Serbíu og horfa á liðið leika gegn Danmörku um komandi helgi. En hverjir eru kostir og gallar liðsins?
„Gallarnir hafa verið varnarleikur og leikskipulag. Þær eru með góða unga leikmenn sem spila með sterkum liðum og eiga framtíðina fyrir sér."
„Það voru allir svekktir með frammistöðuna og úrslitin gegn Sviss. Við tökum því mjög alvarlega en við ætlum að leiðrétta þetta og koma okkur upp á tærnar," segir Freyr en viðtalið við hann má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.






















