Gianluca Prestianni, sem ásakaður er um að hafa beitt Vinicius Junior kynþáttafordómum, vill meina að Vinicius hafi kallað sig „dverg" áður en allt fór í háaloft í leik Benfica og Real Madrid í Meistaradeildinni í síðustu viku.
Vinicius skoraði eina mark leiksins á 50. mínútu. Eftir að hann hafði fagnað fyrir framan stúkuna þá sagði Prestianni eitthvað við hann en setti treyjuna yfir munn sinn þegar hann gerði það, svo ómögulegt er með varalestri að greina hvað hann sagði.
Þrátt fyrir að UEFA hafi sett Prestianni í eins leiks bann og hann megi ekki taka þátt í seinni leiknum sem fram fer annað kvöld þá fór þessi tvítugi leikmaður með samherjum sínum í flugið til Madrídar.
Rannsókn stendur yfir á málinu en Prestianni neitar að hafa kallað Vinicius „apa" eins og hann er ásakaður um. Prestianni segist hafa sagt hommafóbíska móðgun við Vinicius en ekki verið með kynþáttaníð.
Prestianni er bara 1,66 metrar á hæð og einn lágvaxnasti leikmaður Meistaradeildarinnar. Vörnin hans í þessu máli er sú að hann hafi verið að hefna sín eftir að Vinicius gerði grín að hæð hans með því að kalla hann „dverg".
Seinni leikur Real Madrid og Benfica fer fram annað kvöld. Þar verður Prestianni í leikbanni.
Athugasemdir



