„Þetta er súrrealískt. Ég veit ekki hvað skal segja," sagði Håkon Evjen, markaskorari Bodö/Glimt, eftir magnaðan sigur gegn Inter í Meistaradeildinni í kvöld.
Þetta eru stærstu félagsliðaúrslit í sögu norska fótboltans, að Bodö sé að slá út Inter í Meistaradeildinni er í raun ekkert nema kraftaverk.
Þetta eru stærstu félagsliðaúrslit í sögu norska fótboltans, að Bodö sé að slá út Inter í Meistaradeildinni er í raun ekkert nema kraftaverk.
Bodö hefur afrekað magnaða hluti í Meistaradeildinni á þessu tímabili en að slá út silfurliðið frá því í fyrra er eitthvað sem fáir sáu fyrir.
Uppgangur Bodö hefur verið magnaður síðustu ár en þetta átti ekki að vera mögulegt og sérstaklega ekki þegar þú lítur á markaðsvirði leikmannahópana. Samkvæmt Transfermarkt er leikmannahópur Inter metinn á rúmar 667 milljónir evra á meðan leikmannahópur Bodö er metinn á rúmar 57 milljónir evra. Það munar meira en 600 milljónum evra en í fótbolta getur allt gerst.
Verðmætasti leikmaður Inter, Lautaro Martinez, er metinn á 85 milljónir evra á meðan Jens Petter Hauge, verðmætasti leikmaður Bodö, er metinn á 8 milljónir evra.
Dýrustu leikmennirnir í hópi Bodö eru Patrick Berg og Hauge sem voru báðir keyptir á 4 milljónir evra. Þeir eru hins vegar báðir uppaldir hjá félaginu og voru keyptir á minni upphæð en þeir voru seldir frá félaginu fyrir.
Þetta er svo sannarlega mögnuð saga en Bodö mun mæta annað hvort Manchester City eða Sporting frá Lissabon í 16-liða úrslitunum.
Athugasemdir


