Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mið 25. mars 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einungis tveir aðrir sem koma til greina hjá Man Utd
Michael Carrick
Michael Carrick
Mynd: EPA
Micheal Carrick er bráðabirgðastjóri hjá Manchester United og hefur gert vel í starfinu frá því að hann tók við í janúar. Carrick hefur einungis tapað einum af þeim tíu leikjum sem hann hefur stýrt. United hefur fengið 23 stig af 30 mögulegum og með svipuðu áframhaldi mun liðið komast í Meistaradeildina.

Í umfjöllun ManchesterEveningNews skrifar Tyrone Marshall að einungis tveir aðrir kostir séu í skoðun hjá United varðandi framtíðarstjóra félagasins.

Það eru þeir Luis Enrique og Julian Nagelsmann. Enrique er stjóri Evrópumeistaranna í PSG en er með lausan samning. Nagelsmann er þjálfari þýska landsliðsins og er samningsbundinn til 2028 hjá þýska sambandinu.

Nokkrir stjórar í ensku úrvalsdeildinni voru orðaðir við starfið hjá United en Carrick er líklegri en þeir Oliver Glasner, Marco Silva, Unai Emery, Thomas Frank og Andoni Iraola til að stýra United á næsta tímabili.

Slapp
Athugasemdir
banner
banner