Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
banner
   fim 26. febrúar 2026 22:35
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Breyttist úr hetju í skúrk
Luka Stojkovic fagnar gegn Genk en sá síðan rautt í framlengingunni
Luka Stojkovic fagnar gegn Genk en sá síðan rautt í framlengingunni
Mynd: EPA
Genk 3 - 3 Dinamo Zagreb (6-4, samanlagt)
0-1 Monsef Bakrar ('45 )
1-1 Yira Sor ('51 )
1-2 Luka Stojkovic ('57 , víti)
1-3 Luka Stojkovic ('75 )
2-3 Junya Ito ('101 )
3-3 Daan Heymans ('114 )
Rautt spjald: Luka Stojkovic, Dinamo Zagreb ('103)

Belgíska liðið Genk tók síðasta sætið inn í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir baráttuleik gegn króatíska liðinu Dinamo Zagreb í kvöld.

Genk vann fyrri leikinn í Króatíu 3-1 og fór með ansi gott veganesti til Belgíu.

Það veganesti var ekki nóg. Monsef Bakrar skoraði fyrir Zagreb undir lok fyrri hálfleiks en Yira Sor jafnaði í byrjun síðari.

Luka Stojkovic var hetja Zagreb í seinni hálfleiknum. Hann skoraði úr vítaspyrnu á 57. mínútu og jafnaði einvígið stundarfjórðungi fyrir leikslok.

Stojkovic kom sínum mönnum í framlengingu en breyttist fljótlega úr hetju í skúrk. Junya Ito skoraði fyrir Genk á 101. mínútu og tveimur mínútum síðar sá Stojkovic rauða spjaldið fyrir að slá leikmann Genk.

Hann fékk réttilega að líta rauða spjaldið og í síðari hluta framlenginnar fleytti Daan Heymans Genk áfram með þriðja marki þeirra.

Genk áfram og mun annað hvort mæta Freiburg eða Roma í 16-liða úrslitum en drátturinn fer fram í hádeginu á morgun.
Athugasemdir
banner
banner